Hér að neðan má sjá þáttinn "AÐ norðan" sem er af sjónvarpsstöðinni N4 en hann fjallar um Pollamót Þórs sem
fram fór um helgina. Smella hér til að horfa
Skólalóðin við Glerárskóla hefur formlega verið tekin í notkun. Framkvæmdir hafa staðið yfir um nokkurt skeið en nú er þeim loksins að mestu lokið og leiktækin tilbúin til notkunar.
Starfsemi Fincafresh mun á næstu vikum verða flutt il Garðabæjar. Félagið hóf sína starfsemi á Dalvík en flutti til Akureyrar fyrir fáeinum misserum. Nú verður enn á ný lagt upp í ferðalag. Fincafresh selur ferska ávexti beint frá Spáni til áskrifenda.
Hafna þurfti tugum umsókna sem bárust um Heimavist MA og VMA nú á þessu hausti. Vistin er fullsetin, en þar búa nú um 330 nemendur sem stunda ýmist nám í Menntaskólanum á Akureyri eða Verkmenntaskólanum á Akureyri. Yfir 400 umsóknir bárust um vist á þessu hausti, en pláss er fyrir 330.
Starfsfólk Norðurorku tók þátt í Treyjudeginum í dag og mætti í sínum uppáhalds íþróttatreyjum til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Uppselt er á Vatnslitahátíð Íslands 2026 sem hefst á Akureyri í næstu viku. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins vegna viðburðarins, bæði innanlands frá og utan. Hátíðin hefst með opnun sýningar á um 90 vatnslitaverkum frá 21 þjóðlandi í Listasafninu á Akureyri fimmtudaginn 10. september.
Í tilefni af Gulum september tekur fjölbreyttur hópur samtaka á Akureyri höndum saman og býður til notalegrar samverustundar á Birkivelli í Kjarnaskógi laugardaginn 5. september klukkan 14.00.