Stjórn Pírata á Akureyri hefur sent frá sér tilkynningu þar sem gerðar athugasemdir við nokkur atriði í tengslum við kynningu á aðalskipulagi Akureyrar í Hofi nýverið. Stjórn Pírata skipa þeir Halldór Arason, Bjarki Hilmarsson og Baldur Jónsson en athugasemdir þeirra eru eftirfarandi:
"Skipulag endurspeglar ávallt pólitískar áherslur. Mikið vantar uppá að samfélagslegar áherslur séu nægar að mati okkar. Hvergi eru fráteknar lóðir fyrir NFP (Not For Profit) samvinnufélagaverkefni eða fyrir slík verkefni á vegum bæjarins. Píratar á Akureyri telja það úrelta hugsun að leysa ekki bráðavandamál bæjarbúa með hagkvæmustu lausnunum fyrir þá sjálfa. Skortur á húsnæði og sligandi hátt leiguverð er rík ástæða fyrir bæjarfélagið að breyta um stefnu og gera sérstakt átak til þess að leysa úr þessum vanda og taka jafnvel forystu með samfélagslegum og óhagnaðardrifnum lausnum. Það rímaði vel í sögu bæjarins sem var öflugasti samvinnubær í landinu á sínum tíma.
Til stendur að leggja íþróttavöllinn niður og byggja á honum. Það þýðir að útisamkomusvæði er horfið án þess að nokkuð komi staðinn. Bæjarbúar þurfa að koma að slíkum ákvörðunum og valkostir verða að vera fyrir hendi. Stórauka þarf íbúalýðræði til þess að almenningur hafi bein áhrif á umhverfi sitt.
Gæta að framtíðarhugsun til að koma í veg fyrir skipulagsslys. Til að útskýra þessa fullyrðingu má taka dæmi af horninu á Glerárgötu og Tryggvabraut. Á þeirri mikilvægu lóð mun rísa gulur og lágreistur bárujárnskumbaldi undir stórmarkað og einnig heyrast raddir um að bensínstöð verði á reitnum og yrðu þá 4 bensínstöðvar nánast „öxl í öxl“ kringum Glerárbrú. Hverfisnefnd Oddeyrar hefur gert afar áhugaverðar tillögur um notkun á reitnum. Við vitum að lóðin er í einkaeign og lítill möguleiki á að breyta þessari dapurlegu sýn en þetta er mjög gott dæmi til að nota sem hjálpartæki við að móta nýja stefnu í málaflokknum sem tekur meira tillit til þarfa og þátttöku almennings við mótun síns nærumhverfis.
Á fundinum viðraði skipulagsstjóri frábæra hugmynd um að Akureyrarbær gæti haft forgöngu um að reisa hentugar íbúðir fyrir eldra fólk sem vildi færa sig úr stærra húsnæði. Hugmynd eins og þessi gæti hjálpað eðlilegu flæði að myndast, þar sem mismunandi aldurshópar þurfa á misstóru húsnæði að halda. Slíkt gæti einnig minnkað rekstrarkostnað einstaklinga og fjölskylda og aukið lífsgæði. Píratar á Akureyri styðja þessa hugmynd heilshugar og leggja til að byggingar- og rekstrarform miðist við óhagnaðrdrifnar lausnir (NFP) annaðhvort í samvinnu við óhagnaðardrifin byggingar- og leigufélög eða með því að bærinn sjálfur byggði."