PCC segist fórnarlamb í máli sem það hefur enga aðild að

Iðnaðarsvæðið á Bakka. Mynd: epe
Iðnaðarsvæðið á Bakka. Mynd: epe

Stjórn PCC BakkiSilicon hf. harmar þá stöðu sem komin er upp á Bakka og varðar stöðvun framkvæmda á vegum Landsnets sem valdið getur umtalsverðu fjárhagstjóni fyrir PCC BakkiSilicon verði ekki fundin lausn sem fyrst á þeirri sérkennilegu stöðu sem komin er upp. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér rétt í þessu.

„PCC BakkiSilicon stendur nú skyndilega frammi fyrir mikilli óvissu vegna atburðarásar sem fyrirtækið á enga aðild að og haft getur áhrif á framkvæmdir þess sem hafa verið í undirbúningi undanfarna 15 mánuði,“ segir í tilkynningunni.

Eins og áður hefur komið fram felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sl. föstudag tvo bráðabirgðaúrskurði sem valda því að yfirstandandi framkvæmdir við Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4 hafa verið stöðvaðar tímabundið á meðan nefndin fjallar um kæru Landverndar vegna ákvarðana sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar um að gefa út leyfi fyrir framkvæmdunum.

Óttast fjárhagstjón

Í tilkynningunni sem PCC BakkiSilicon sendi frá sér er fjárfestingakostnaður fyrirtækisins vegna kísilmálmverksmiðjunar á Bakka áætlaður um 300 milljónir bandaríkjadollara og kemur jafnframt fram að nú þegar hafi stórum hluta þeirrar fjárh´ðar veri varið til verkefnisins og lýsa forsvarsmenn fyrirtækisins þungum áhyggjum yfir því að miklum fjárhagslegum hagsmunum sé telft í tvísýnu ef svo fari að afhending raforku til verksmiðjunnar tefjist frá því sem samið hefur verið um.

Í kæru Landverndar kemur fram að fyrirhuguð orkuþörf PCC BakkiSilicon sé allt að 58MW. Hið rétta er að orkuþörf tveggja ofna er um 54MW miðað við 36 kt framleiðslu en miðað er við 66kt í umhverfismati og uppkasti af starfsleyfi sem krefjast mun 100 MW en ekki 58MW eins og segir í kæru Landverndar.

Haft er eftir Hafsteini Viktorssyni framkvæmdastjóra hjá PCC BakkiSilicon hf. Að fyrirtækið muni ekki blanda sér í þessa deilu en hann leggur áherslu á að það hafi aldrei staðið til að þær framkvæmdir sem Landsneti hefur verið gert að stöðva beinist eingöngu að þörfum PCC. „Þær hafa þvert á móti að markmiði að geta uppfyllt orkuþörf fleiri atvinnufyrirtækja sem vilja hefja rekstur á Bakka,“ segir Hafsteinn.

Undrandi yfir því að framkvæmdir fáist stöðvaðar

Breytingar á náttúruverndarlögum tóku gildi 15. nóvember 2015. Fjórum mánuðum síðar var óskað eftir leyfum fyrir lagningu beggja raforkulínanna og gaf Skútustaðahreppur út framkvæmdaleyfi þann 2. maí og Þingeyjarsveit 14. júní. Í kjölfarið hófust framkvæmdir við undirbúning línulagnarinnar. „Það er að okkar mati mjög sérkennilegt að hægt sé að fá framkvæmdir stöðvaðar sem hlotið hafa öll tilskilin leyfi og haft getur í för með sér það uppnám sem nú er orðið. Ef okkur hefði grunað að svona færi hefðum við væntanlega ekki byrjað verklegar framkvæmdir,“ segir Hafsteinn.

Minna á ábyrgð ríkisins

Í tilkynningunni bendir PCC á að í grein 2.7 í fjárfestingarsamningi sem gerður var við íslensk stjórnvöld og öðlaðist gildi í maí 2014 komi m.a. fram að ríkisstjórn Íslands muni tryggja að „engar ráðstafanir verði gerðar sem kynnu að takmarka eða hafa önnur neikvæð áhrif á framkvæmd verkefnisins og starfsemi félagsins eða með öðrum hætti hindra að félagið og PCC SE njóti þeirra réttinda og ávinnings sem leiða af fjárfestingarsamningi þessum.“

Fréttin var uppfærð kl. 14:52

 

Tengdar fréttir:

Norðurþing hefur miklar áhyggjur af stöðvun framkvæmda við Þeistareykjalínu 1

Landvernd ítrekar kröfu um nýtt umhverfismat vegna Bakkalína

Umhverfismatið gerir ráð fyrir tvöfalt stærri verksmiðju

Framkvæmdir við Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4 stöðvaðar að kröfu Landverndar

Nýjast