Hálkublettir, hálka eða snjóþekja er á Vesturlandi með skafrenningi og éljum. Þungfært er á Fróðárheiði,
Útnesvegi og Skógarströnd en þæfingur á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Stórhríð er á sunnanverðum
Vestfjörðum og á Ströndum og ekki ferðaveður. Suðurlandi er víða hálka. Hálka og skafrenningur er bæði á Hellsiheiði og
í Þrengslum. Sama er að segja um Suðurnes, Reykjanesbrautina og upp á Kjalarnes, þar er hálka og skafrenningur.
Það er óveður á Vopnafjarðarheiði, Þungfært er á Möðrudalsöræfum. Fjarðarheiði er ófær og þar er
beðið með mokstur. Þá er einnig vonskuveður á Oddsskarði og þungfært. Annarsstaðar á Austurlandi er víðast hvar nokkur
hálka eða snjóþekja.
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur á Austurlandi við mikilli umferð hreindýra, sérstaklega á Fagradal.