Öxnadalsheiði ófær og beðið með mokstur vegna veðurs

Öxnadalsheiði er ófær og þar er beðið með mokstur vegna veðurs. Ekkert ferðaveður er við vestanverðan Eyjafjörð. Það er hríðarveður í Þingeyjasýslum, víða hvasst og mikill skafbylur, raunar er óveður á Mývatnsheiði. Hálka er í Húnavatnssýslum og Skagafirði og verið er að moka Þverárfjall.  

Hálkublettir, hálka eða snjóþekja er á Vesturlandi með skafrenningi og éljum. Þungfært er á Fróðárheiði, Útnesvegi og Skógarströnd en þæfingur á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Stórhríð er á sunnanverðum Vestfjörðum og á Ströndum og ekki ferðaveður. Suðurlandi er víða hálka. Hálka og skafrenningur er bæði á Hellsiheiði og í Þrengslum. Sama er að segja um Suðurnes, Reykjanesbrautina og upp á Kjalarnes, þar er hálka og skafrenningur.
Það er óveður á Vopnafjarðarheiði, Þungfært er á Möðrudalsöræfum. Fjarðarheiði er ófær og þar er beðið með mokstur. Þá er einnig vonskuveður á Oddsskarði og þungfært. Annarsstaðar á Austurlandi er víðast hvar nokkur hálka eða snjóþekja.  
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur á Austurlandi við mikilli umferð hreindýra, sérstaklega á Fagradal.

Nýjast