Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur hafnað erindi íbúa við Dvergaholt sem fóru fram á að gatan yrði opnuð niður í Óseyri. Fram kemur í undirskriftarlista frá íbúum að húsnæði á vegum bæjarins sem eru við götuna vegi þar þungt.
Íbúarnir lögðu fram undirskriftarlista þar sem óskað var eftir breytingu á deiliskipulagi. Málið hefur áður verið til umfjöllunar en í júní var fallið frá áformum um að opna fyrir umferð frá Dvergaholti niður á athafna- og hafnarsvæði eftir grenndarkynningu og athugasemdir sem bárust.
Skipulagsráð telur að staðsetning smáhýsa við Dvergaholt gefi ekki tilefni til að endurskoða fyrri ákvörðun um að halda götunni sem botnlanga fremur en að gera hana að gegnumakstursgötu. Erindinu var því hafnað.