„Ástand í orkumálum á Norðurlandi eystra er algjörlega óviðunandi,“ segir í bókun um orkumál sem sam þykkt var á aðalfundi Eyþings sem haldinn var á Siglufirði nýverið. Bent er á að ráðast þurfi í stórátak í endurnýjun og styrkingu dreifikerfis raforku landsins til að bæta samkeppnisstöðu atvinnulífs í landshlutanum.
„Mikilvægt er að stjórnvöld skýri reglur og markmið og stuðli að betri sátt um uppbyggingu dreifikerfis raforku.“ Mikilvægt er að tryggja fjármagn svo hægt verði að ljúka við Dettifossveg og eins til að byggja upp flughlaðið á Akureyrarflugvelli. Byggja þarf upp samgöngumannvirki í landshlutanum að mati sveitarstjórnarmanna í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum.