Húsvíkingar og gestir bæjarins þurfa yfirleitt ekki að fara mjög langt til að sjá hvali, svo sem kunnugt er. En sjálfsagt þó aldrei jafn stutt eins og nú í vikunni, því hvalurinn kom sjálfur til Húsvíkinga og raunar alla leið inn í höfnina. Að vísu væntanlega ekki af sjálfsdáðum, því hann var genginn á vit feðra sinna þegar starfsmenn Norðursiglingar urðu varir við hræið af honum í gær, við slippinn inni í höfninni.
Hvalurinn var dreginn á landi og þar hafa gestir og gangandi getað skoðað hann í krók og kring. Og það gerði ljósmyndari Skarps og Dagskrárinnar eimitt fyrir stundu. Að sögn fróðra þar um er hér á ferð grindhvalur, sem eru afar fátíðir gestir á Skjálfandaflóa, um fjögurra metra langur og telst því í minni kantinum og er þar með væntanlega ungur að árum. JS