Óskað vitna að meintri líkamsárás

Lögregla óskar eftir að heyra frá þeim sem vitni urðu að meintri líkamsárás við pylsuvagninn í miðbæ…
Lögregla óskar eftir að heyra frá þeim sem vitni urðu að meintri líkamsárás við pylsuvagninn í miðbæ Akureyrar aðfaranótt sunnudags.

 

 

Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir vitnum af meintri líkamsárás sem átti sér stað á Akureyri, nánar tiltekið í Hafnarstræti, skammt frá pylsuvagninum um klukkan 00:45 aðfararnótt sunnudagsins 17. október síðastliðinn. 

Maður á sextugsaldri var að ræða við fjóra menn og endar það samtal með handalögmálum sem leiðir til þess að elsti maðurinn í hópnum liggur eftir á götunni. Hann nær síðar að koma sér á brott. 

 Lögreglan er með upptöku af meintri árás en þar sést meðal annars að eitthvað af fólki varð vitni af þessu atviki. Lögreglan biður þá sem hafa upplýsingar um meinta líkamsárás að hafa samband.


Athugasemdir

Nýjast