Óskað eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu Vínbúðarinnar

Á fundi skipulagsnefndar Akureyrar í vikunni var tekið fyrir erindi frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, þar sem sótt er um byggingarleyfi vegna viðbyggingingar við Hólabraut 16, þar sem Vínbúðin er til húsa. Fram kemur í bókun skipulagsnefndar að úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hafi borist kæra vegna deiliskipulagsbreytingar fyrir Hólabraut-Laxagötu.  

Ennfremur kemur fram að úrskurður nefndarinnar kunni að hafa áhrif á gildi byggingarleyfis, það fellt úr gildi eða framkvæmdir stöðvaðar á meðan málsmeðferð úrskurðarnefndar stendur yfir. "Uppfylli umsækjandi öll sett skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis verða framkvæmdir heimilaðar með fyrirvara um ofangreint og á ábyrgð ÁTVR. Meirihluti skipulagsnefndar felur skipulagsstjóra að samþykkja byggingaáformin þegar gögn berast," segir í bókun skipulagsnefndar. Sigurður Guðmundsson A-lista greiddi atkvæði gegn afgreiðslunni og Auður Jónasdóttir V-lista sat hjá.

Nýjast