Óskað eftir ábendinum um fallega garða á Akureyri

Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Sérstaklega verður horft til hönnunar, frágangs lóðar/athafnasvæðis, viðhalds, hirðingar, umgengni, fjölbreytilegs plöntuvals og aðlaðandi götumyndar. Ef þurfa þykir getur dómnefnd ákveðið önnur áhersluatriði og veitt viðurkenningar samkvæmt þeim.

Óskað er eftir ábendingum í eftirfarandi flokkum:

-Flokkur eldri garða.

-Flokkur nýrri garða.

-Flokkur raðhúsa/fjölbýlishúsa.

-Flokkur fyrirtækja.

-Flokkur stofnana.

-Fyrirmyndar gata bæjarins.

Dómnefnd ákveður hversu margar viðurkenningar eru veittar í hverjum flokki. Heimilt er að fella niður úthlutun viðurkenningar í einstökum flokkum, ef kröfum verður ekki fullnægt. Tekið er á móti ábendingum í netfangi jbg@akureyri.is, í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar og í síma 460 1000 til og með 20. ágúst.

Nýjast