Viðurkenningar verða veittar í eftirfarandi flokkum: Flokkur nýrri garða, flokkur eldri garða., flokkur raðhúsa/fjölbýlishúsa og flokkur stofnana. Sérstaklega verður horft til hönnunar, frágangs lóðar/athafnasvæðis, viðhalds, hirðingar, umgengni, fjölbreytilegs plöntuvals, aðlaðandi götumyndar o.fl. Ef þurfa þykir getur dómnefnd ákveðið önnur áhersluatriði en fyrr eru nefnd og veitt viðurkenningar samkvæmt því. Dómnefnd ákveður hversu margar viðurkenningar eru veittar í hverjum flokki. Heimilt er að fella niður úthlutun viðurkenningar í einstökum flokkum, ef sýnt þykir að enginn standist ofangreindar viðmiðanir. Tekið er á móti ábendingum í netfangi verkefnastjóra umhverfismála, (Jón Birgir Gunnlaugsson), jbg@akureyri.is frá 20. ágúst til og með 27. ágúst og í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar í síma 460-1000.