Orgelhátíð í Akureyrarkirkju Einstakur tónleikaviðburður!

Hans-Ola Ericsson spilar á tónleikum í Akureyrarkirkju n.k. þriðudagskvöld
Hans-Ola Ericsson spilar á tónleikum í Akureyrarkirkju n.k. þriðudagskvöld
Hans-Ola Ericsson spilar alla Orgelbüchlein eftir J.S. Bach
Svíann Hans-Ola Ericsson þarf varla að kynna fyrir orgeláhugafólki, en hann er einn virtasti orgelleikari samtímans. Hann mun spila alla Orgelbüchlein eftir J.S. Bach á tónleikum í Akureyrarkirkju þriðjudaginn 20. september kl. 20
J.S. Bach samdi Orgelbüchlein sennilega fyrir son sinn, Wilhelm Friedemann. Bókin átti að innihalda 164 kóralforspil en Bach kláraði aðeins 46. Bókin er einskonar kennslubók í spuna, orgelleik og tónsmíðum fyrir orgel og eru verkin því afar fjölbreytt. Sálmforleikirnir eru flestir stuttir og tekur u.þ.b. 80-90 mínútur að flytja þá alla. Orgelbüchlein er af flestum spekingum talin magnaðasta safn orgeltónsmíða sem til er.
Hans-Ola Ericsson er ekki aðeins einn magnaðasti orgelleikari samtímans, hann er einnig mjög virtur kennari, tónskáld, fyrirlesari, ráðgjafi og myndlistarmaður. Hann ferðast á milli bestu orgela heimsins til að halda tónleika og kenna.
Ericsson mun einnig halda masterclass fyrir íslenska organista um Orgelbüchlein
Aðgangseyrir er 2500 kr
Tónlistarsjóður, Sóknarnefnd Akureyrarkirkju og Héraðssjóoður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastdæmis styrkja Orgelhátíð í Akureyrarkirkju
 
Hans-Ola Ericsson er fæddur í Stokkhólmi árið 1958. Hann er afar þekktur organisti með hundruð tónleika að baki, auk þess sem hann er virtur kennari og afar gott tónskáld
Ericsson er þekktur fyrir túlkun sína og útgáfu á tónlist og Olivier Messiaen og John Cage. Plötuútgáfa hans á öllum verkum Messien þykir tímamóta útgáfa. Einnig fjölmargar plötur með verkum J.S. Bach, bæði orgelverkum og kammerverkum.
Í mörg ár laðaði Hans-Ola Ericsson nemendur að konsertorganistadeild Tónlistarháskólans í Piteå í Svíþjóð. Hann var skipaður prófessor árið 1989 og efnilegir nemendur frá öllum heimshornum sóttu í að nema orgelleik hjá Ericsson. Árið 2011 flutti hann til Montreal og starfaði sem yfirmaður kirkjutónlistar og orgeldeildar við hinn virta McGill háskóla. Ericsson hefur flutt aftur heim til Svíþjóðar og starfar nú mest við tónleikahald víða um heim.
 
Þetta segir i tilkynningu frá Listvinafélagi Akureyrarkirkju

Athugasemdir

Nýjast