Opinn fundur á Akureyri um atvinnumál

Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar á Akureyri, fimmtudaginn 24. nóvember, um stöðu atvinnu- og efnahagsmála. Fundurinn fer fram í Hofi kl. 8.30-10 og eru allir velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA. Formaður SA, Vilmundur Jósefsson, og framkvæmdastjóri SA, Vilhjálmur Egilsson, munu kynna hugmyndir Samtaka atvinnulífsins um hvernig rjúfa má kyrrstöðuna á Íslandi og bæta lífskjörin auk þess að efna til umræðu um leiðir út úr kreppunni.

Einnig verður greint frá niðurstöðum nýrrar könnunar Capacent á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja á Íslandi. Fundurinn er hluti af fundaröð SA Rjúfum kyrrstöðuna. Leiðir til betri lífskjara.

 

Nýjast