Opinberum störfum hefur fjölgað lítið á Eyjafjarðarsvæðinu

"Í fjárlagafrumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi er boðaður verulegur niðurskurður útgjalda. Af því tilefni vill bæjarstjórn Akureyrar minna á að lítil fjölgun opinberra starfa hefur orðið á Eyjafjarðarsvæðinu á undanförnum árum.  Á sama tíma hefur starfsemi á vegum ríkisins vaxið verulega á höfuðborgarsvæðinu," segir í bókun sem samþykkt var með 11 samhljóða atkvæðum á fundi bæjarstjórnar í gær.

"Það er því sanngjörn og eðlileg krafa bæjarstjórnar Akureyrar að áhersla verði lögð á að draga úr kostnaði ríkisins á því svæði þar sem þensla opinberra útgjalda varð mest.
Ljóst er að í tengslum við opinber embætti víða um land, s.s. héraðsdómstóla og fleira, hefur orðið til þekking í héraði og sérhæfing sem hætta er á að glatist verði þessi störf lögð niður og flutt suður.  Mikilvægt er að draga upp heildarsýn til framtíðar þegar farið er í jafn róttæka uppstokkun og fyrirsjáanleg er í ríkisrekstrinum og skoða þá jafnframt hugmyndir að nýrri og breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga,"  segir ennfremur í bókun bæjarstjórnar.

Nýjast