Ók inn í nautgripahjörð á Eyjafjarðarbraut

Ungur ökumaður slapp lítið meiddur þegar hann ók inn í nautgripahjörð á Eyjafjarðarbraut Vestri um klukkan tvö í nótt. Einn nautgripur drapst og annar var svo mikið meiddur að dýralæknir aflífaði hann á staðnum.
 

Ökumaðurinn telur sig hafa ekið á að minnsta kosti þrjá gripi og eru bændur að kanna hjörðina nánar. Gripirnir sluppu út úr girðingu og fóru langt frá heimkynnum sínum.
Ökumaðurinn fór á Sjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar en bíllinn er stór skemmdur, ef ekki ónýtur, að sögn lögreglu. Þetta kemur fram á visir.is.

Nýjast