Hafnasamlag Norðurlands á von á nýjum og öflugum dráttarbát í sumar en smíði á bátnum stendur yfir í skipasmíðastöð í norðurhluta Spánar. Nýr dráttarbátur fyrir Hafnasamlag Norðurlands hefur verið inni á samgönguáætlun en smíði hans er styrkt af hluta af Hafnabótasjóði. Gert er ráð fyrir að hann komi til heimahafnar á Akureyri í lok maí eða byrjun júní.
Báturinn verður með 40 tonna togkraft og því fjórfalt öflugri en sá sem fyrir er. Hann er 22 metra langur og 9 metra breiður. Báturinn er búinn azimuth skrúfubúnaði og verður öflugasti dráttarbátur landsins.
Pétur Ólafsson, hafnarstjóri, segir í viðtali í blaðinu Sóknarfæri að báturinn verði sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi og muni gjörbreyta allri dráttarbátaþjónustu m.a. þegar kemur að þjónustu við sístækkandi skip sem sigla inn Eyjafjörðinn. Að auki verður hann öflugt öryggistæki fyrir allt Norðurland.
„Með því að festa kaup á svo öflugum dráttarbát svörum við kalli breyttra tíma, skipin stækka og núverandi dráttarbátar eru alls ekki nógu öflugir. Með tilkomu nýja bátsins eykst öryggið til muna og við erum því full tilhlökkunar að taka hann í notkun í sumar,“ segir Pétur.
Kaupverðið á bátnum er um 450 milljónir króna og hefur hann hlotið nafnið Seifur.