Oddvitaumræður á Rúv

Oddvitar á Akureyri sitja fyrir svörum á Rás 2.
Oddvitar á Akureyri sitja fyrir svörum á Rás 2.

Oddvitaumræður á Akureyri verða á Rás 2 í kvöld kl. 18:00. Umræður verða um sveitarstjórnarmál með oddvitum þeirra sjö flokka sem bjóða fram á Akureyri.

Gestir Arnar Páls Haukssonar og Sunnu Valgerðardóttur verða þau Guðmundur Baldvin Guðmundsson, Framsóknarflokki, Halla Björk Reynisdóttir, L-lista, Rósa Njálsdóttir, sem skipar annað sæti Miðflokksins, Halldór Arason, Pírötum, Hilda Jana Gísladóttir, Samfylkingu, Gunnar Gíslason, Sjálfstæðisflokki, og Sóley Björk Stefánsdóttir, Vinstri grænum.

Þættinum verður útvarpað í beinni útsendingu frá bæjarstjórnarsal Akureyrar og hefst sem fyrr segir kl. 18:00. 

 

Nýjast