Oddur stóð sig vel í Grænlandi

Oddur Grétarsson, handboltamaður hjá Akureyri Handboltafélag, fann sig vel í leikjunum gegn Grænlandi um nýliðna helgi þar sem hann spilaði tvo landsleiki með U- 21 árs landsliði Íslands gegn því Grænlenska.

Í jafnteflis leik gegn A- landsliði Grænlendinga, þar sem leikar fóru 32-32, skoraði Oddur 11 mörk og var markahæstur í liði Íslands. Í seinni leiknum sem var gegn U- 21 árs landsliði Grænlands, skoraði Oddur fjögur mörk í sigri Íslands, 38-34.

Oddur skoraði því alls 15 mörk í þessum tveimur leikjum sem verður að teljast nokkuð gott hjá þessum efnilega handboltamanni.

Nýjast