Oddur í 21-manna landsliðshóp Guðmundar

Oddur Gretarsson í leik með Akureyri í vetur.
Oddur Gretarsson í leik með Akureyri í vetur.

Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið 21 leikmann til undirbúnings fyrir EM í Serbíu og landsliðsfyrirliðinn Ólafur Stefánsson er ekki í þessum hópi. Þar með er ljóst að Ólafur verður ekki með og missir því af sínu fyrsta stórmótið síðan 1993. Oddur Gretarsson frá Akureyri er hins vegar í hópnum en hópurinn verður styttur niður í 16 manns skömmu fyrir mót.

Landsliðið mun koma saman 2.janúar til æfinga og æfir til 4.janúar. 5.janúar fer liðið á Total Kredit Cup í Danmörku og leikur þar við Pólland, Slóveníu og Danmörku. Liðið mun svo leika gegn Finnum hér heima föstudaginn 13.janúar en liðið fer utan 14.janúar.

Ísland hefur svo leik á EM þann 16.janúar en liðið er í riðli með Króatíu, Noregi og Slóveníu.

Landsliðshópurinn:

Markmenn:
Aron Rafn Eðvarðsson, Haukar
Björgvin Páll Gústavsson, Magdeburg
Hreiðar Leví Guðmundsson, Nötteröy

Aðrir leikmenn:
Alexander Petersson, Fücshe Berlin
Arnór Atlason, AG Köbenhavn
Arnór Þór Gunnarsson, TV Bittenfeld
Aron Pálmarsson, Kiel
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Hannover-Burgdorf
Fannar Þór Friðgeirsson, TV Emsdetten
Guðjón Valur Sigurðsson, AG Köbenhavn
Ingimundur Ingimundarson, Fram
Kári Kristján Kristjánsson, HSG D/M Wetzlar
Oddur Grétarsson, Akureyri
Ólafur Guðmundsson, Nordsjælland
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Róbert Gunnarsson, Rhein-Neckar Löwen
Rúnar Kárason, Die Bergische Handball Club
Snorri Steinn Guðjónsson, AG Köbenhavn
Sverre Jakobsson, Grosswallstadt
Þórir Ólafsson, KS Vive Targi Kielce
Vignir Svavarsson, Hannover-Burgdorf

Nýjast