Oddur á EM-Arnór Þór dettur út

Oddur Gretarsson er á leiðinni á sitt annað stórmót í röð, en hann var einnig með á HM í Svíþjóð í f…
Oddur Gretarsson er á leiðinni á sitt annað stórmót í röð, en hann var einnig með á HM í Svíþjóð í fyrra.

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, hefur valið sautján leikmenn fyrir lokakeppni Evrópumótsins í Serbíu sem hefst á sunnudaginn. Oddur Gretarsson, hornamaður hjá liði Akureyrar, er í hópnum en Akureyringurinn Arnór Þór Gunnarsson dettur út. Leikstjórnandinn Snorri Steinn Guðjónsson er ekki í hópnum en hann gefur ekki kost á sér þar sem hann og kona hans hafa nýlega eignast sitt annað barn. Þetta er mikið áfall fyrir íslenska liðið sem verður einnig án Ólafs Stefánssonar sem gefur heldur ekki kost á sér vegna meiðsla. Aron Pálmarsson verður því aðalleikstjórnandi íslenska liðsins og mun mikið mæða á honum í Serbíu.

Ólafur Bjarki Ragnarsson, miðjumaður hjá HK, og Rúnar Kárason, vinstri skytta hjá Bergischer, eru einu leikmennirnir sem ekki hafa farið á stórmót áður. Ólafur, ásamt Arnóri Atlasyni, munu vera Aroni til taks á miðjunni en Guðjón Valur Sigurðsson hefur einnig brugðið sér í stöðu miðjumanns.

Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson og Fannar Þór Friðgeirsson detta út úr hópnum ásamt Arnóri.

Lokahópurinn fyrir Evrópumótið í Serbíu:

Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson Magdeburg
Hreiðar Levý Guðmundsson Nötteröy

Útileikmenn:
Alexander Petersson    Fuchse Berlin
Arnór Atlason    AG Köbenhavn
Aron Pálmarsson    THW Kiel
Ásgeir Örn Hallgrímsson    Hannover-Burgdorf
Guðjón Valur Sigurðsson    AG Köbenhavn
Ingimundur Ingimundarson    Fram
Kári Kristján Kristjánsson    HSG Wetzlar
Oddur Grétarsson    Akureyri
Ólafur Andrés Guðmundsson    Nordsjælland
Ólafur Bjarki Ragnarsson    HK
Róbert Gunnarsson    Rhein Neckar Löwen
Rúnar Kárason    Bergischer HC
Sverre Jakobsson    Grosswallstadt
Vignir Svavarsson    Hannover-Burgdorf
Þórir Ólafsson    KS Vive Targi Kielce

Nýjast