Óánægja með yfirvofandi breytingar á húsnæði Myndlistarskólans

Myndlistarskólinn er staðsettur ofarlega í Gilinu en hluti hússins verður lagður undir gististarfsem…
Myndlistarskólinn er staðsettur ofarlega í Gilinu en hluti hússins verður lagður undir gististarfsemi.

Stjórn Gilfélagsins og Myndlistarfélagsins hafa sent frá sér sameiginlega ályktun vegna óánægju félaganna með breytingar á starfsemi í húsnæði sem hýst hefur Myndlistarskólann á Akureyri til fjölda ára. Stjórnir Gilfélagsins og Myndlistarfélagsins lýsa yfir áhyggjum af því að hluti húsnæðisins Kaupvangsstræti 16, sem hýst hefur Myndlistaskólann á Akureyri, verði nú lagður undir gististarfsemi.

„Það teljum við ekki vera í samræmi við markmið ný samþykkts Aðalskipulags Akureyrar þar sem segir: „Í Grófargili (Listagili) verður lögð áhersla á menningar- og listatengda starfsemi“.  Upphaf listatengdrar starfsemi á svæðinu má rekja til framsýnna ákvarðana í kringum 1990 og á síðustu misserum hefur verið stutt vel við þá stefnu með uppbyggingu og endurbótum á Listasafninu. Það er von okkar að þær framkvæmdir verði til enn frekari eflingar í listalífi bæjarins en hafa þarf í huga að sjálf listsköpunin er undirstaða safna og sýninga.

Það er von okkar að listnám á svæðinu þróist og eflist enda mun sköpun, menning og listir skipa vaxandi sess í samfélaginu eftir því sem lengra inn í fjórðu iðnbyltinguna líður. Við viljum því skora á bæjaryfirvöld að fylgja fast eftir fyrrnefndum markmiðum, standa vörð um menningar- og listatengda starfsemi og gæta þannig hagsmuna samfélagsins til framtíðar,“ segir í ályktun.  

Nýjast