31. mars, 2011 - 18:25
Fréttir
Petrea Ósk Sigurðardóttir Framsóknarflokki og Valdís Anna Jónsdóttir Samfylkingu, fulltrúar í umhverfismefnd Akureyrar, létu
bóka á fundi nefndarinnar í gær, að þær lýstu mikilli óánægju með að málefni Fallorku, vegna virkjunar í
Glerárdal, skuli ekki hafa borist umhverfisnefnd til umsagnar.
"Við teljum eðlilegt að þetta mál hefði fengið umræðu og afgreiðslu í fagnefndum bæjarins en ekki eingöngu í
bæjarráði. Mikilvægt er að skoða málið frá öllum hliðum til að tryggja að mismunandi sjónarmið og rökstuðningur
fái umræðu innan stjórnkerfis bæjarins áður en ákvörðun er tekin," segir ennfremur í bókuninni.