Nýtt skref í átt að grænum iðngarði á Bakka

Stjórnsýsluhhúsið á Húsavík. Mynd/epe
Stjórnsýsluhhúsið á Húsavík. Mynd/epe

Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti á þriðjudag samstarfsyfirlýsingu milli Norðurþings og Landsvirkjunar vegna greiningar á möguleikum þess að þróa iðnaðarsvæðið á Bakka sem vistvænan iðngarð (e. eco-industrial park) ásamt greiningu á möguleikum ólíkra iðngreina til að styðja við frekari uppbyggingu orkuháðrar starfsemi á svæðinu samkvæmt markmiðum sveitarfélagsins.

Í samstarfsyfirlýsingunni segir enn fremur að til að styðja við uppbyggingu atvinnustarfsemi á Bakka hefur verið ráðist í umfangsmiklar innviðafjárfestingar sem gera það að verkum að Bakki er það iðnaðarsvæði landsins sem er hvað best í stakk búið til að standa undir frekari orkuháðri starfsemi.

„Norðurþing hefur mótað sér þá sýn að heillavænlegt þykir að hefja formlegt samstarf við hagsmunahafa iðnaðarsvæðisins við að stuðla að frekari þróun atvinnustarfsemi á Bakka undir formerkjum sjálfbærrar þróunar í anda heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Norðurþingi er mikið í mun að sú atvinnuuppbygging sem mun þróast á Bakka til næstu ára mæti bæði samfélagslegum-, umhverfislegum- og efnahagslegum kröfum sveitarfélagsins og stuðli þar með að aukinni sjálfbærni svæðisins í sem víðustum skilningi. Þannig getur áframhaldandi uppbygging á Bakka stutt jákvæða þróun samfélagsins í Norðurþingi og aukið viðnámsþrótt sveitarfélagsins,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá kemur fram að ofangreind markmið eru grunnstef í stefnu Landsvirkjunar og nýtingu þeirra auðlinda sem fyrirtækinu er trúað fyrir.

Á þessum grunni hafa Norðurþing og Landsvirkjun gert með sér samkomulag um að stofna til samstarfs um frekari þróun og greiningu þess ramma sem nauðsynlegur er til að hægt sé að skilgreina Bakka sem vistvænan iðngarð samkvæmt ofangreindum markmiðum.

Báðir aðilar lýsa sig sammála um að setja á laggirnar sérstakan vinnuhóp, sem leiðir þá vinnu sem fram undan er.

Kostnaður og kostnaðarskipting vegna verkefnisins verður samið sérstaklega um í kjölfar þessa samkomulags.


Athugasemdir

Nýjast