Nýr samningur um Minjasafn og skáldasöfn

Samningana undirrituðu Sigfús Karlsson formaður stjórnar Minjasafnsins á Akureyri og Ásthildur Sturl…
Samningana undirrituðu Sigfús Karlsson formaður stjórnar Minjasafnsins á Akureyri og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri. Mynd/Ragnar Hólm.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Sigfús Karlsson formaður stjórnar Minjasafnsins á Akureyri undirrituðu nýverið nýja samninga til næstu þriggja ára um þjónustu Minjasafnsins og rekstur skáldasafnanna Nonnahúss og Davíðshúss. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.

Í þjónustusamningnum við Minjasafnið er getið um starfsemi, hlutverk og tilgang safnsins en það er í eigu sveitarfélaganna Hörgársveitar, Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Svalbarðsstrandarhrepps og Grýtubakkahrepps. 

Minjasafnið safnar á markvissan hátt munum og ljósmyndum sem endurspegla lífshætti og menningu á starfssvæðinu skv. söfnunarstefnu samþykktri af stjórn safnsins. Munir sem tekið er á móti eru varðveittir um ótiltekinn tíma í varðveislumiðstöð safnsins. Safnið skráir safnkostinn í miðlægan gagnagrunn, stendur fyrir eða á samstarf um rannsóknir á menningarminjum á starfssvæði safnsins og birtir rannsóknarniðurstöður. Hlutverk safnsins er einnig að miðla menningararfnum, standa fyrir ýmsum viðburðum og sinna fræðslu og efla menningarlæsi.

Í rekstrarsamningi vegna skáldasafnanna er kveðið á um hlutverk Minjasafnsins við umsjón með söfnum skáldanna, faglegu safnastarfi, varðveislu safngripa, miðlun og fræðslu. Samningarnir sem undirritaðir voru gilda til 31. desember 2023, segir á vef Akureyrarbæjar.


Athugasemdir

Nýjast