Nýr og afkastamikill götusópur í eigu Akureyrarbæjar hefur verið tekinn í notkun. Sópnum er ætlað að vinna gegn svifryksmengun á Akureyri. Götusópurinn, sem er af gerðinni Schmidt 660, er fyrsta flokks tæki og ákaflega vel búinn. Frá þessu er greint á vef bæjarins.
Sópurinn er á metanbíl í samræmi við umhverfis- og samgöngustefnu bæjarins. Með þessu tæki er hægt að hreinsa göturnar á skilvirkan og vandaðan hátt og stuðla þannig að fallegra umhverfi og hreinna lofti.
Fjárfestingin er liður í aðgerðum Akureyrarbæjar til að stemma stigu við svifryksmengun sem mælist reglulega of mikil. Þá segir á heimasíðu bæjarins að vonir standi til að með samhentu átaki bæjarins við að hreinsa betur göturnar og íbúa við að draga úr bílaumferð og notkun nagladekkja megi ná góðum árangri í baráttunni við svifrykið.
Götusópurinn var boðinn út síðasta vor og er keyptur af fyrirtækinu Aflvélum ehf. fyrir 40 milljónir króna.