Nýr einstaklingsklefi í Sundlaug Akureyrar

Mynd/Akureyri.is
Mynd/Akureyri.is

Nýr einstaklingsklefi verið tekinn í notkun í Sundlaug Akureyrar. Markmiðið með klefanum er fyrst og fremst að bæta aðgengi að sundlauginni. Búningsklefinn nýtist einkum þeim sem hafa aðstoðarmann af öðru kyni eða þeim sem geta ekki notað hina hefðbundnu kynjuðu búningsklefa, segir á vef Akureyrarbæjar.

Klefinn er á 2. hæð og aðgengilegur með lyftum alla leið. Þar er fyrsta flokks aðstaða fyrir fatlað fólk, þar á meðal upphækkanlegur bekkur og pokalyfta. Þá voru settir glænýir skápar með rafrænu PIN-númerakerfi líkt og eru í hinum klefunum.

"Þetta er mikið framfaraskref og gleðilegt fyrir starfsfólk og marga notendur. Gott aðgengi skiptir miklu máli," segir á vef bæjarins.


Athugasemdir

Nýjast