Nýjar sýningar opnaðar á Listasafninu á Akureyri Steinvölur Eyjafjarðar, Kveikja og Sena

Guðný Kristmannsdóttir, Play Me, 2023
Guðný Kristmannsdóttir, Play Me, 2023

Þrjár sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri næstkomandi laugardag, 27. janúar kl. 15, en sýnendur eru Alexander Steig – Steinvölur Eyjafjarðar, Guðný Kristmannsdóttir – Kveikja, og Sigurður Atli Sigurðsson – Sena.

Boðið verður upp á listamannaspjall með Alexander Steig og Sigurði Atla kl. 15.45 og er stjórnandi Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins. Haldið verður listamannaspjall með Guðnýju Kristmannsdóttur laugardaginn 3. febrúar kl. 15 og boðið upp á fjölskylduleiðsögn um sýningarnar þrjár sunnudaginn 24. mars kl. 11-12.

 

Steinvölur Eyjafjarðar

Í reglulegum gönguferðum sínum meðfram ánni Isar í München í Þýskalandi leitar listamaðurinn Alexander Steig að steinvölum. Þar sem hann er menntaður listmálari og myndhöggvari er það frekar áhugi hans á skúlptúr en jarðfræði sem er hvatinn að þessari leit. Hann mun halda áfram að leita að steinvölum í fjörunni á Hjalteyri, en þangað hefur hann nú þegar komið tvisvar sinnum, 2008 og 2012. Fyrir Listasafnið á Akureyri hefur hann upphugsað verkefnið eyja-fjörður-vala, sem er tileinkað steinvölum heima-fjarðar Akureyrar – Eyjafirði.

Kveikja

„Djarfar og kröftugar pensilstrokur bera ekki vitni um hvatvísi í risastórum málverkunum, heldur birtast villtar og goðsagnakenndar skepnur upp úr löngu og meðvituðu ferli – hvort sem það er páfugl með „strap-on“ eða skordýr í trylltum hlátri,“ segir bandaríski listfræðingurinn Pavi Stave um sýningu Guðnýjar Kristmannsdóttur.

Sena

Orðið scenography þýðir bókstaflega að skrifa í rými og var upphaflega notað til að lýsa því þegar tvívíð teikning er yfirfærð í þrívíddarteikningu; senan er teiknuð upp. Verkin á sýningunni sýna viðmiðunarpunkta hugrænnar kortlagningar og hvernig manneskjan gerir tilraun til að skipuleggja umhverfi sitt bæði út frá hugmyndafræði og líkamlegum þörfum.

Sigurður Atli Sigurðsson býr og starfar í Reykjavík. Verk hans takast á við byggingarefni samfélagsins, með því að skoða þau kerfi sem við búum okkur til og lifum eftir.


Athugasemdir

Nýjast