Ný þjónustustefna Akur- eyrarbæjar kynnt

Bæjarstjórinn á Akureyri, Hermann Jón Tómasson, kynnti fyrir helgina nýja þjónustustefnu fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar og fór athöfnin fram á lóð leikskólans Kiðagils í blíðskaparveðri. Þjónustustefnan var samþykkt í bæjarstjórn Akureyrar í febrúar sl. en meginatriði hennar koma fram í gildunum "fagleg, lipur og traust".  

Um leið og stefnan var kynnt, voru veitt verðlaun fyrir tákn sem standa fyrir gildin þrjú en efnt var til samkeppni um táknin á meðal starfsfólks bæjarins. Það var Gunnlaug E. Friðriksdóttir, þjónustufulltrúi á búsetudeild bæjarins, sem hlaut viðurkenningu fyrir tillögu sína. Einnig fékk Davíð Hjálmar Haraldsson, launafulltrúi hjá starfsmannaþjónustu bæjarins, sérstaka viðurkenningu fyrir "stafræna lýsingu á gildunum þremur" í bundnu máli.

Stafræn lýsing Davíðs Hjálmars á gildum fyrir þjónustustefnu Akureyrarbæjar  er svohljóðandi:

Ætíð hér við okkur semst,
ei við notum svipur;
þjónustan er fyrst og fremst
FAGLEG, TRAUST og LIPUR.

Við hjálpumst að ef þess er þörf,
þínum óskum sinnum
og fróð um okkar fjölbreytt störf
FAGLEG öll hér vinnum.

Lítir þú til okkar inn
sem ætíð verið gæti,
brosir glaður bærinn þinn
og býður LIPUR sæti.

Ekkert hér við látum laust,
þín leyndarmál ei sýnum.
Þjónustan er trygg og TRAUST:
Treystu bænum þínum.

Nýjast