Ný stjórn Markaðsstofu Norðurlands var kosin á aðalfundi félagsins í lok maí. Aðalfundurinn var óvenjulegur en hann var í fyrsta sinn haldinn sem fjarfundur. Venju samkvæmt var kosið í lausar stöður í stjórn MN.
Hlutskörpust urðu þau Viggó Jónsson frá Drangeyjarferðum, sem jafnframt var kosinn nýr formaður, Örn Arnarson, eigandi Hótel Laugarbakka, Heba Finnsdóttir, eigandi veitingastaðanna Bryggjunnar og Striksins og Sigrún Hulda Sigmundsdóttir, hótelstjóri Icelandair hótel Akureyri.
Koma þau því inn í stjórn ýmist til eins árs eða tveggja. Edda Hrund Guðmundsdóttir hótelstjóri Hótel Laxár er áfram í stjórn og þá voru þau Þórdís Bjarnadóttir frá Höldur og Tómas Árdal frá Arctic Hotels áfram kjörin varamenn í stjórn. Úr stjórn fóru Baldvin Esra Einarsson frá Saga Travel sem gegndi formennsku, Arngrímur Arnarson frá Norðursiglingu,og Sigurður Líndal Þórisson frá Selasetrinu á Hvammstanga