Læsi er lykillinn nefnist ný læsisstefna á Akureyri og á nágrenni sem kynnt var á dögunum og er á vegum fræðslusviðs Akureyrarbæjar og Miðstöðvar skólaþróunar HA. Megintilgangur læsisstefnunnar er að efla læsi í víðum skilningi og stuðla að skapandi og gagnrýninni hugsun barna og ungmenna.
Soffía Vagnsdóttir, fræðslustjóri Akureyrarbæjar, segir læsisstefnuna vera afrakstur rúmlega þriggja ára ferlis sem hefur byggst á öflugri samvinnu margra aðila.
„Skipulag vinnunnar tók mið af hugmyndum um lærdómssamfélag (e. learning community) þar sem lögð var áhersla á að allir sem hlut eiga að máli kæmu að vinnunni. Læsisstefnan er byggð á ástralskri fyrirmynd en þróuð og staðfærð að aðalnámsskrá íslenskra leik- og grunnskóla,“ segir Soffía.
Unnið er út frá hugmyndafræðinni um læsi í víðum skilningi sem skiptist í þrjú meginsvið: Samræða, tjáning og hlustun, lestur, lesskilningur og lesfimi og ritun og miðlun. Hagnýt gögn stefnunnar byggja á þrepum um þróun læsis, þar sem sett eru fram viðmið um færniþætti og áherslur í kennslu út frá öllum þáttum læsis. Soffía segir samvinnu kennara á vettvangi leik- og grunnskólanna hafa verið lykilatriði í þróun á innihaldi stefnunnar en sérfræðingar á Miðstöð skólaþróunar við HA hafa stýrt verkinu.
Læsisstefnan „Læsi er lykillinn“ birtist á heimasíðunni www.lykillinn. akmennt.is og er hún opin öllum. Á síðunni er að finna heildaráherslur stefnunnar ásamt ýmsu ítarefni sem er hagnýtt bæði fyrir kennara, foreldra og aðra þá sem hafa áhuga á læsi barna.