Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði á Akureyri með appi án aukagjalda

Verna hefur opnað appið sitt fyrir öll, hvort sem bíllinn er tryggður hjá Verna eður ei.  Meðal nýjunga í appinu er sá möguleiki að leggja bílnum í gjaldskyld stæði án þess að greiða aukagjöld.  Í notkun á appinu felst engin skuldbinding, bara ávinningur þar sem notendur geta nýtt sér ýmis sértilboð og fríðindi.

 Notendur sem ná í appið fyrir 1. mars nk. geta unnið 100 þúsund króna gjafabréf frá Play.

,,Markmið Verna er ekki bara að hugsa bílatryggingar upp á nýtt og gera þær sanngjarnari og gegnsærri, heldur einnig að einfalda líf notenda þegar kemur að notkun bílsins. Að appið okkar verði eins konar “one-stop shop“ fyrir bíleigendur“, segir Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Verna.  ,,Liður á þeirri vegferð er sú nýjung að notendur geta núna nýtt Verna appið til að leggja bílnum í gjaldskyld stæði án þess að greiða aukagjöld. Önnur bílastæða-öpp innheimta ýmist fast mánaðargjald eða færslugjald í hvert sinn sem bílnum er lagt, en við rukkum ekki krónu umfram það sem Bifreiðastæðasjóður Akureyrar innheimtir.   Varlega áætlað eru aukagjöld að jafnaði 25-30% af heildarkostnaði við að leggja bílnum. Þú þarft ekki að kaupa tryggingu af okkur til þess að nota appið til að leggja”, áréttar Friðrik.

Besta ,,dílinn" fyrir bílinn

Í Verna appinu er að finna kort yfir bensínstöðvar í nágrenninu.  Þar má bera saman verð á milli einstakra stöðva, það gæti verið ódýrara bensín hinumegin við götuna.  Í appinu er einnig að finna sérstaka afslætti á þjónustu og dekri fyrir bílinn.  Allir geta nýtt sér afsláttinn en þeir sem tryggja hjá Verna fá enn betri díl.  Appið býður einnig upp á þann möguleika að fylla út tjónaskýrslu rafrænt, og finna lista yfir öll bestu verkstæðin sem Verna er í samstarfi við.

,,Sá möguleiki að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu breytir miklu fyrir bíleigendur og leysir af hólmi þörfina á að hafa önnur bílastæða-öpp sem innheimta sérstök þjónustugjöld.  Hver sem er getur sótt sér appið og það tekur vel innan við mínútu að ganga frá skráningu til að geta nýtt sér þjónustu appsins”, segir Friðrik að lokum.

 Kíktu undir húddið og sjáðu hvað Verna hefur uppá að bjóða 

Verna - Hugsum bílatryggingar upp á nýtt

 

 

 


Athugasemdir

Nýjast