Norræni skjaladagurinn er á laugardag

Opnuð hefur verið sýning á Héraðsskjalasafninu á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Opnuð hefur verið sýning á Héraðsskjalasafninu á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

Opinber skjalasöfn á Norðurlöndum hafa lengi kynnt starfsemi sína með ýmsu móti. Árið 2001 sameinuðust þau um árlegan kynningardag, annan laugardag í nóvember. Upphaflega var ákveðið var að annað hvert ár skyldi dagurinn helgaður sameiginlegu norrænu þema. Þess á milli áttu söfnin að hafa frjálsar hendur. Norræni skjaladagurinn í ár er laugardagurinn 12. nóvember.  Þema dagsins þetta árið er „Verslun og viðskipti“. 

Héraðsskjalasafnið á Akureyri verður með sýningu af þessu  tilefni  sem hefst, mánudaginn 14. nóvember og stendur til 25. nóvember. Þar verða tínd til nöfn á sem flestum verslunum er starfræktar hafa verið á Akureyri allt frá lokum einokunartímans til ársins 1980 og þær staðsettar í hús. Um er að ræða gríðarlegan fjölda verslana og engan veginn hægt að gera þeim öllum skil og þess vegna verður leitað til alls almennings um viðbótarupplýsingar. Sýningin mun standa til 25. nóvember og er opin mán.- fös kl. 10:00-19:00 og lau. kl. 11:00 -16:00.

 

Nýjast