Á dögunum skrifuðu Vís og Norðurþing undir samning um tryggingar sveitarfélagsins til næstu þriggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu.
"Vís og Norðurþing hafa átt gott samstarf í hátt í fjóra áratugi og því er mikil ánægja með að samstarfið haldi áfram," segir í tilkynningunni.
Samningurinn var gerður eftir útboð hjá Concello ehf. löggildri vátryggingamiðlun. Í samstarfinu hefur verið mikil áhersla á forvarnir og stefnir Norðurþing á að vera fremst meðal annarra sveitarfélaga í forvörnum.