Norðurþing fær 25 milljónir til byggingar 4 íbúða

Það er orðið nokkuð langt um liðið frá því síðast var byggt við hinn gamalgróna Höfðaveg á Húsavík. …
Það er orðið nokkuð langt um liðið frá því síðast var byggt við hinn gamalgróna Höfðaveg á Húsavík. JS

Niðurstöður liggja fyrir um úthlutun stofnframlaga til uppbyggingar íbúða á grundvelli laga þar um. Norðurþing sótti um stofnframlög til byggingar fjögurra íbúða innan þessa nýja almenna íbúðakerfis. Tvær þeirra yrðu staðsettar við Höfðaveg 6 og tvær við Lyngholt 26-31.

Heildarstofnvirði samkvæmt umsókn Norðurþings er kr. 94.230.000- og sótt var um 18% stofnframlag, 6% viðbótarframlag vegna markaðsbrests á grundvelli byggingarkostnaðar og 4% viðbótarframlag vegna þeirra íbúða sem ætlaðar eru einstaklingum með fötlun.

Það er markmið laga um almennar íbúðir að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga undir tekju- og eignamörkum, með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda eða að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna.

Niðurstaða úthlutunarnefndarinnar var sú að samþykkja umsókn Norðurþings um samtals 24.267.200 króna stofnframlag til verkefnisins.

Byggðarráð Norðurþings fagnaði þessari niðurstöðu sem ljóst sé að leiði til aukins íbúðaframboðs á Húsavík á næsta ári. Sveitarstjóra var falið að fylgja málinu eftir gagnvart samstarfsverktakanum í verkefninu, Trésmiðjunni Rein. JS

Nýjast