Norðurskel í Hrísey gjaldþrota

Félagið Norðurskel ehf. í Hrísey hefur verið úrskurðað gjaldþrota.  Stjórn félagsis óskaði eftir því við Hérðasdóm Norðurlands eystra að það yrði úrskurðað gjaldþrota og var það gert í lok síðustu viku. Áður hafði félagið verið í greiðslustöðvun frá lokum nóvember þar sem reynt var að endurskipulegga fjármál félagsins og fá nýja fjárfesta að rekstrinum.

Norðurskel ehf. var stofnað árið 2000 og hefur verið leiðandi aðili í þróun kræklingaræktar á Íslandi. Fyrstu ár félagsins fóru að stærstum hluta í þróun á ræktunaraðferðum en undanfarið ár hefur félagið selt afurðir sínar reglulega hérlendis og einnig hefur töluvert af skel verið flutt á erlendan markað.
Fyrirtækinu hefur verið lokað og er óljóst með hver næstu skref í málinu verða að sögn Björns Gíslasonar stjóðsstjóra hjá Tækifæri.  Hann segir að einhver áhugi sé fyrir hendi á að reyna að reisa félagið við, en sem stendur sé óljóst hvort af því verður og hvernig málum þá fram vindur. Alls störfuðu fimm manns hjá Norðurskel að framkvæmdastjóra meðtöldum.  Árni Pálsson var skipaður skiptastjóri þrotabúsins.

Nýjast