Norðurorka veitti fyrir skemmstu styrki til samfélagsverkefna að heildarfjárhæð sjö milljónir króna.
Alls bárust 81 umsóknir frá 79 aðilum. Flestar umsóknir bárust frá aðilum á Akureyri og síðan af Eyjafjarðarsvæðinu en nokkrar umsóknir frá öðrum stöðum.
Flest verkefnin eru á sviði menningar og lista en einnig verkefni á íþróttasviðinu og ýmiskonar fræðslu og útgáfustarf. Á vef Norðurorku segir að áhersla sé lögð á verkefni á Eyjafjarðarsvæðinu og í Þingeyjarsveit þ.e. starfssvæði Norðurorku en styrkir hafa þó farið á verkefni á landsvísu einnig.
„Eins og áður eru verkefnin mjög fjölbreytt og greinilega mikil gróska í samfélaginu á fjölmörgum sviðum. Að þessu sinni hljóta 45 verkefni styrk og heildarfjárhæð styrkja sjö milljónir króna,“ segir í tilkynningunni.
Hér að neðan má sjá lista yfir þau verkefni eða þá aðila sem hljóta styrk.
Umsækjandi - styrkþegi |
málefni |
Akureyrar Akademían |
Fræðandi fyrirlestrar fyrir íbúa öldrunarheimila |
Akureyrarkirkja - safnaðarnefnd |
Sýning um byggingarsögu Akureyrarkirkju |
Anita Karin Guttesen |
Listasmiðjan Laugum - sýningarrými o.fl. |
Anna Lóa Ólafsdóttir |
Einn blár strengur - átaksverkefni - kynbundið ofbeldi |
Hollvinasamtök SAk. vegna Blóðbankans |
Búnaðarkaup - blóðtökubekkir |
Brynjar Karl Óttarsson |
Saga Kristneshælis - 90 ára afmæli 2017 |
DAM verkefni Oddeyrarskóla |
Innleiðing á DAM - vinna gegn kvíða og neikvæðri líðan |
Eyþór Ingi Jónsson |
Klassík í nýjum klæðum - samstarf við Sigurð Flosason. |
Fanney Kr. Snjólaugardóttir |
Tónleikaröð 2017 - verk gleymdra kvenna |
Fimleikafélag Akureyrar |
Parkour áhöld |
Fjallasalir |
Uppbygging á safnamiðstöð á Ólafsfirði |
Freyvangsleikhúsið |
Leiksýning í tilefni 50 ára afmælis |
Golfklúbbur Akureyrar |
Efling barna og unglingastarfs |
Grófin Geðverndarmiðstöð |
Rekstur miðstöðvar, námskeið o.fl. |
Hafþór Andri Sigrúnarsson |
Afreksstyrkur - U20 Landsliðið í íshokký |
Handverkshátíðin Eyjafjarðarsveit |
Listasmiðja fyrir börn á handverkshátíðinni 2017 |
Háskólinn á Akureyri |
Vísindaskóli unga fólksins |
Hjálpræðisherinn á Akureyri |
Listasmiðja fyrir unglinga - barna og unglingastarf |
Hreinn Halldórsson |
Tréskúlptúrar - menningartengd ferðaþjónusta. |
Hymnodía |
Tónleikar með Voces Thules 2017 |
Ingunn Högnadóttir |
Verkefni til stuðnings einstaklingum með málstol |
Írís Hrönn Kristinsdóttir í samstarfi við MS-HA |
Forritun í gegnum leik |
Íþróttafélagið Akur |
Keppnisferð til Svíþjóðar |
Jóhann Þór Hólmgrímsson |
Vetrarólympíuleikar fatlaðra 2018 |
Knattspyrnufélag Akureyrar |
Vinna að áætlun gegn einelti |
Kammerkór Norðurlands |
Tónleikar og tónleikaferð |
Karlakór Akureyrar Geysir |
Karlakóramót |
Kirkjukór Laugalandsprestakalls |
Útgáfa á geisladisk |
Kirkjukór Möðruvallaklausturssóknar |
Menningarstundir í tilefni 150 ára afmælis |
Kirkjukór Ólafsfjarðar |
Afmælishátíð 100 ára afmæli kórs |
Kór Akureyarkrikju |
Tónleikar og tónleikaferð |
Kvennakór Akureyrar |
Kóramót |
Kvennfélagið Hlíf |
Hjálp í heimabyggð |
Lauf Hrólfsdóttir |
Námskeið - næring á meðgöngu |
Sveinn Jónsson |
Minnisvarði um Látra Björgu |
Leikfélag VMA |
Leiksýning og félagsstarf |
Leikklúbburinn Krafla |
Sæborg í sókn - sýning |
Listvinafélag Akureyrarkirkju |
Kirkjulistavika 2017 |
Menningarfélagið Hraun |
Söguskilti í Öxnadal |
NyArk Media ehf |
Damaskus Rósin - heimildarmynd um flóttamenn |
Sambýlið Borgargili 1 |
Koma upp heitum potti í sambýlið |
Skíðafélag Siglufjarðar |
Fjallaskíðamennska - æfingar og mót |
Svavar Alfreð Jónsson |
Ljósmyndabók um Eyfirska fossa |
Ungmennafélagið Smárinn |
Barna- og unglingastarf |
Úlfur Logason |
Afreksstyrkur - listnám |