Norðurorka veitir 7 milljónum til samfélagsverkefna

Styrkþegar og fulltrúar þeirra. Myndin er tekin í Flugsafni Íslands en styrkirnir voru afhentir við …
Styrkþegar og fulltrúar þeirra. Myndin er tekin í Flugsafni Íslands en styrkirnir voru afhentir við athöfn sem fór fram þar á dögunum. Mynd: no.is

Norðurorka veitti fyrir skemmstu styrki til samfélagsverkefna að heildarfjárhæð sjö milljónir króna.

Alls bárust 81 umsóknir frá 79 aðilum. Flestar umsóknir bárust frá aðilum á Akureyri og síðan af Eyjafjarðarsvæðinu en nokkrar umsóknir frá öðrum stöðum. 

Flest verkefnin eru á sviði menningar og lista en einnig verkefni á íþróttasviðinu og ýmiskonar fræðslu og útgáfustarf. Á vef Norðurorku segir að áhersla sé lögð á verkefni á Eyjafjarðarsvæðinu og í Þingeyjarsveit þ.e. starfssvæði Norðurorku en styrkir hafa þó farið á verkefni á landsvísu einnig.

„Eins og áður eru verkefnin mjög fjölbreytt og greinilega mikil gróska í samfélaginu á fjölmörgum sviðum. Að þessu sinni hljóta 45 verkefni styrk og heildarfjárhæð styrkja sjö milljónir króna,“ segir í tilkynningunni.

Hér að neðan má sjá lista yfir þau verkefni eða þá aðila sem hljóta styrk.

Umsækjandi - styrkþegi

málefni

Akureyrar Akademían

Fræðandi fyrirlestrar fyrir íbúa öldrunarheimila

Akureyrarkirkja - safnaðarnefnd

Sýning um byggingarsögu Akureyrarkirkju

Anita Karin Guttesen

Listasmiðjan Laugum - sýningarrými o.fl.

Anna Lóa Ólafsdóttir

Einn blár strengur - átaksverkefni - kynbundið ofbeldi

Hollvinasamtök SAk. vegna Blóðbankans

Búnaðarkaup - blóðtökubekkir

Brynjar Karl Óttarsson

Saga Kristneshælis - 90 ára afmæli 2017

DAM verkefni Oddeyrarskóla

Innleiðing á DAM - vinna gegn kvíða og neikvæðri líðan

Eyþór Ingi Jónsson

Klassík í nýjum klæðum - samstarf við Sigurð Flosason.

Fanney Kr. Snjólaugardóttir

Tónleikaröð 2017 - verk gleymdra kvenna

Fimleikafélag Akureyrar

Parkour áhöld 

Fjallasalir

Uppbygging á safnamiðstöð á Ólafsfirði

Freyvangsleikhúsið

Leiksýning í tilefni  50 ára afmælis

Golfklúbbur Akureyrar

Efling barna og unglingastarfs

Grófin Geðverndarmiðstöð

Rekstur miðstöðvar, námskeið o.fl.

Hafþór Andri Sigrúnarsson

Afreksstyrkur - U20 Landsliðið í íshokký

Handverkshátíðin Eyjafjarðarsveit

Listasmiðja fyrir börn á handverkshátíðinni 2017

Háskólinn á Akureyri

Vísindaskóli unga fólksins

Hjálpræðisherinn á Akureyri

Listasmiðja fyrir unglinga - barna og unglingastarf

Hreinn Halldórsson

Tréskúlptúrar - menningartengd ferðaþjónusta.

Hymnodía 

Tónleikar með Voces Thules 2017

Ingunn Högnadóttir

Verkefni til stuðnings einstaklingum með málstol

Írís Hrönn Kristinsdóttir í samstarfi við MS-HA

Forritun í gegnum leik

Íþróttafélagið Akur

Keppnisferð til Svíþjóðar

Jóhann Þór Hólmgrímsson

Vetrarólympíuleikar fatlaðra 2018

Knattspyrnufélag Akureyrar 

Vinna að áætlun gegn einelti

Kammerkór Norðurlands

Tónleikar og tónleikaferð

Karlakór Akureyrar Geysir

Karlakóramót

Kirkjukór Laugalandsprestakalls

Útgáfa á geisladisk

Kirkjukór Möðruvallaklausturssóknar

Menningarstundir í tilefni 150 ára afmælis

Kirkjukór Ólafsfjarðar

Afmælishátíð 100 ára afmæli kórs

Kór Akureyarkrikju

Tónleikar og tónleikaferð

Kvennakór Akureyrar

Kóramót

Kvennfélagið Hlíf

Hjálp í heimabyggð

Lauf Hrólfsdóttir

Námskeið - næring á meðgöngu

Sveinn Jónsson

Minnisvarði um Látra Björgu

Leikfélag VMA

Leiksýning og félagsstarf

Leikklúbburinn Krafla

Sæborg í sókn - sýning

Listvinafélag Akureyrarkirkju

Kirkjulistavika 2017

Menningarfélagið Hraun

Söguskilti í Öxnadal

NyArk Media ehf

Damaskus Rósin - heimildarmynd um flóttamenn

Sambýlið Borgargili 1

Koma upp heitum potti í sambýlið

Skíðafélag Siglufjarðar

Fjallaskíðamennska - æfingar og mót

Svavar Alfreð Jónsson

Ljósmyndabók um Eyfirska fossa

Ungmennafélagið Smárinn

Barna- og unglingastarf

Úlfur Logason

Afreksstyrkur - listnám

Nýjast