Norðmenn kosta prófessorsstöðu í norðurslóðafræðum við HA
Utanríkisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre kemur í opinbera heimsókn til Íslands í dag og hefst hún á Akureyri. Støre og utanríkisráðherra Íslands, Össur Skarphéðinsson, munu taka þátt í fundi um norðurslóðasamstarf Íslands og Noregs sem Háskólinn á Akureyri stendur fyrir ásamt utanríkisráðuneytinu og fer fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.
Þar mun Støre flytja erindi um norðurslóðamál og skrifa undir samning við Háskólann á Akureyri um stöðu prófessors í norðslóðafræðum, Nansenstöðu. Af þessu tilefni opnar utanríkisráðherrann einnig sýningu um norska heimskautafarann, vísindamanninn og mannvininn Fridtjof Nansen og verður sýningin opin almenningi í Hofi frá kl. 17:00 - 20:00 í dag. Sýningin verður síðan opnuð á ný í Háskólanum á Akureyri 3. október og verður opin á opnunartíma háskólans til 14. október.