Norðlenska flytur innan tveggja ára

Norðlenska á Akureyri.
Norðlenska á Akureyri.

Norðlenska á Akureyri hefur sagt upp leigusamningi sínum og hyggst flytja höfuðstöðvar sínar úr núverandi húsnæði á Akureyri innan tveggja ára, en sláturhús og kjötvinnslustöð hefur verið starfrækt á sama stað við Grímseyjargötu allar götur frá 1928. Frá þessu var greint í Fréttablaðinu í dag.

Auk höfuðstöðvanna á Akureyri er fyrirtækið einnig með sláturhús á Höfn og á Húsavík. Viðræður hafa verið í gangi milli fyrirtækisins og Hörgársveitar annars vegar og Akureyrar hins vegar, um nýja lóð fyrir fyrirtækið.

Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska, segir í samtali við Fréttablaðið að líklegast sé að fyrirtækið byggi sér nýtt húsnæði undir starfsemi sína. 

Nýjast