28. febrúar, 2008 - 08:42
Fréttir
Níu manns voru fluttir á slysadeild FSA í gærdag eftir tvo harða árekstra sem urðu með skömmu millibili á þjóðvegi 1
á Svalbarðsströnd. Jeppi ók aftan á rútu sem hafði numið staðar til að hleypa út farþegum við bæinn Sólberg. Tveir
farþegar jeppans slösuðust en beita þurfti klippum til að ná farþega úr bílnum. Ekki er talið að um alvarleg meiðsl hafi verið
að ræða. Jeppinn er gjörónýtur og rútan talsvert skemmd. Seinni áreksturinn varð skömmu síðar rétt austan Leirubrúar
en slökkviliðsmenn og stjórnendur komu fyrstir að því slysi á leið sinni frá hinu slysinu. Sá árekstur var geysiharður, fimm manns
voru í öðrum bílnum en tveir í hinum. Þurfti að beita klippum til að ná ökumanni annars bílsins en hann slasaðist talsvert. Einn
úr hinum bílnum slasaðist einnig alvarlega en allir voru fluttir á slysadeild til skoðunar og meðferðar.
Samtals unnu í þessu slysi 13 slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn frá SA á þremur sjúkrabílum, dælubíl og tveimur
þjónustubílum auk vaktlæknis á læknabíl. Ennfremur kom sjúkrabíll Dalvíkinga, mannaður tveimur
sjúkraflutningamönnum, sem staddur var á Akureyri, til aðstoðar á slysstað en fjórði sjúkrabíll SA var í flutningi
utanbæjar. Lögregla og vegfarendur veittu einnig góða aðstoð. Mikið annríki hefur verið hjá slökkviliðinu í gær en samtals
voru skráðir 16 sjúkraflutningar frá því í gærmorgun auk þriggja sjúkrafluga, þar af eitt með sjúkling suður til
Reykjavíkur úr slysinu í gær.