Sesselja Sif Óðinsdóttir, 9 ára fimleikastelpa frá Akureyri, keppti um síðustu helgi á heimsmeistaramóti barna í fitness. Mótið var haldið í Bratislava í Slóvakíu og þar mættu margar af bestu fimleikastúlkum í heiminum til leiks. Keppendur voru tæplega eitt hundrað og kepptu í þremur flokkum, 8 til 9 ára, 10 til 11 ára og 12 til 13 ára. Sesselja hafnaði í 14. sæti í aðalkeppnisgreininni sem er fitnesslota þar sem keppendur þurfa að sýna liðleika og styrktaræfingar í vel útfærðri danslotu.
Þetta telst frábær árangur hjá Sesselju þar sem allir keppendur voru mjög góðir og flestir meistarar í sínum löndum en þetta er fyrsta keppni Sesselju í fitness. Líklega er Sesselja yngsti keppandi sem keppt hefur fyrir íslands hönd á heimsmeistaramóti í sinni íþróttagrein. Sesselja er dóttir Kristínar Kristjánsdóttur íslandsmeistara í fitness og fósturdóttir Sigurðar Gestssonar en þau eru að búa sig að fullum krafti undir heimsmeistaramót í Tyrklandi í haust.