Neyðarkall björgunarsveitanna seldur um allt land
Neyðarkall björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður seldur um land allt nú um helgina. Salan hefst í dag, fimmtudag. Er þetta í sjötta sinn sem þessi fjáröflun fer fram og er hún orðin ein sú mikilvægasta fyrir björgunarsveitir landsins. Afar mikilvægt er að vel takist til með söluna í ár þar sem björgunarsveitir hafa ekki farið varhluta af þeim tekjusamdrætti sem orðið hefur víðast hvar í þjóðfélaginu undanfarin ár.
Á sama tíma hafa verkefnin verið ærin. Þrjú eldgos sem eru með stærri aðgerðum björgunarsveita frá stofnun þeirra og mikil aukning í ferðamennsku eru meðal þeirra aðstæðna sem hafa valdið sífellt fleiri útköllum sjálfboðaliðanna í sveitunum. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson mun í dag hefja formlega söluna á Neyðarkalli björgunarsveita með því að selja Magnúsi Gunnlaugssyni, sem á líf sitt björgunarsveitum að launa, eftir að bátur hans sökk norður af Akurey í mars á þessu ári, fyrsta Neyðarkallinn.