Netflix áfram í Hofi

Menningarhúsið Hof.
Menningarhúsið Hof.

SinfoniaNord, hliðarverkefni Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, heldur áfram á fullri ferð en um sl. helgi hljóðritaði Grammy-verðlaunahafinn Steve McLaughlin og tónskáldið Stefan Gregory kvikmyndatónlist í Hofi við stórmynd sem afþreyingarrisinn Netflix framleiðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar.

Í samkomubanninu, þegar allt tónleikahald var í lágmarki og þúsundur manna misstu vinnu sína, fengu um sextíu tónlistarmenn, hljóðmenn og sviðsstjórar aukavinnu við tvær stórmyndir fyrir Netflix.

„SN var þannig eina sinfóníuhljómsveitin í heiminum sem gat tekið að sér slík verkefni fyrir kvikmyndarisann. Framundan hjá hljómsveitinni í sumar eru pantanir fyrir tvær stórar Hollywood kvikmyndir, alþjóðlega kántríplötu, upptökur fyrir söngleik og sjónvarpsþætti,“ segir í tilkynningu.

 


Athugasemdir

Nýjast