Nemendur við Háskólann á Akureyri hafa sett af stað undirskriftalista þar sem skorað er á skólayfirvöld að hafa heimapróf. Segir í undirskriftalistanum að
í dag séu u.þ.b tvær vikur í byrjun prófatíðar. Nemendur séu ennþá í óvissu hvað varðar próf á prófstað en nokkrir kennarar í HA hafa ákveðið að hafa heimapróf en ekki allir.
"Þetta er óásættanlegt að halda nemendum í óvissu. Miðað við ástandið í dag 8.apríl er útlitið ekki gott hvað varðar að hafa staðarpróf en samt vilja kennarar láta á það reyna og munu þá breyta nokkrum dögum fyrir prófdag. Við krefjumst svara frá stjórn HA um að það sama eigi að ganga yfir alla," segir í undirskrifalistanum.
Þega þetta er skrifað hafa tæplega 800 skrifað undir.