26. maí, 2008 - 15:34
Fréttir
Nemendur Grenivíkurskóla bregða á leik í Gamla bænum Laufási fimmtudaginn 29. maí kl. 16.00. Þetta er endapunktur á
þemaviku nemendanna sem að þessu sinni var tileinkuð Gamla bænum.
Hann mun því lifna við svo um munar þegar börnin, sem klædd verða í takt við tíðarandann, sýna afrakstur mikillar vinnu
þemavikunnar. Gestir geta fylgst með því þegar æðardúnn verður hreinsaður, mjólk skilin og rjómi strokkaður. Húslestur
og tóvinna verða í baðstofunni og spilað verður púkk. Ljúfur lummuilmur mun berast um bæinn um leið og dansað verður á
flötinni fyrir framan hann. Dagskráin hefst með fimmundarsöng og ljóðalestri í kirkjunni kl 16. Enginn aðgangseyrir verður tekinn frá kl. 15 og
allir eru velkomnir. Gamli bærinn er opinn alla daga frá 9-18 og veitingasala er í Gamla prestshúsinu.