Nemendurnir uppskáru mikinn fögnuð áhorfenda enda var frammistaða þeirra einstök. Það verður önnur sýning leik- og tónlistarhópsins í menningarhúsinu Hofi á fimmtudag 12. maí kl. 14:00. Þá fá þeir sem ekki gátu mætt sl. laugardag möguleika á að upplifa þessa frábæru skemmtun. Allir eru hjartanlega velkomnir og er aðgangur ókeypis.
List án landamæra á Norðurlandi stendur til 15. maí. Nánari upplýsingar um dagskrá eru að finna á slóðinni listanlandamaera.blog.is