Nemendur Fjölmenntar stóðu sig vel á opnunarhátíð Listar án landamæra

Nemendur Fjölmenntar á Akureyri tóku stóran þátt í opnunarhátíð Listar án landamæra í troðfullu Ketilhúsinu á Akureyri sl. laugardag.  Leikhópurinn flutti leikritið Apóllónía sem er leikgerð eftir sögu Edwards Fuglö í þýðingu Úlfs Hjörvar. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir. Einnig flutti tónlistarhópur Fjölmenntar tónlistaratriði undir stjórn Láru Sóleyjar Jóhannsdóttur og Hjalta Jónssonar.  

Nemendurnir uppskáru mikinn fögnuð áhorfenda enda var frammistaða þeirra einstök. Það verður önnur sýning leik- og tónlistarhópsins í menningarhúsinu Hofi á fimmtudag 12. maí kl. 14:00.  Þá fá þeir sem ekki gátu mætt sl. laugardag möguleika á að upplifa þessa frábæru skemmtun. Allir eru hjartanlega velkomnir og er aðgangur ókeypis.

List án landamæra á Norðurlandi stendur til 15. maí.  Nánari upplýsingar um dagskrá eru að finna á slóðinni listanlandamaera.blog.is

Nýjast