Þetta kemur fram þegar fjöldi farþega í þriðju viku þessa árs er borinn
saman við sama tíma í fyrra. Að meðaltali voru farþegar á dag 640 í þriðju
viku ársins 2006 en eru nú að meðaltali 1.020. Því er ljóst að Akureyringar
taka niðurfellingu fargjalda fegins hendi. Nú þegar er hafin vinna við
endurskoðun á leiðarkerfi Strætisvagna Akureyrar með það að meginmarkmiði
að hefja akstur um hið nýja Naustahverfi syðst í bænum. Ekki er gert ráð
fyrir að núverandi akstursleiðum verði breytt nema að litlu leyti en
staðsetning stoppistöðva verður skoðuð og tímatöflur uppfærðar. Þar að auki
er stefnt að því að leið 4 aki að Háskólanum á Akureyri.