Möguleikamiðstöð fyrir atvinnu- lausa opnar í Rósenborg

Möguleikamiðstöð verður opnuð í Rósenborg á Akureyri þriðjudaginn 31. mars n.k.  kl: 10:00. Möguleikamiðstöðin er sérstaklega ætluð fólki í atvinnuleit og er hlutverk hennar að þjóna þeim sem vilja nýta tímann til fulls.  Á opnunardeginum verða fulltrúar hátt í 30 aðila á Akureyri með kynningar, aðilar sem hafa ýmislegt í boði fyrir áhugasama t.d. nám, tómstundir og sjálfboðaliðastarf.    

Einnig verða fulltrúar stéttarfélaganna á Akureyri og Vinnumálastofnunar á staðnum.  Margt af því sem í boði er, er ókeypis. Möguleikamiðstöðin sjálf verður í kjölfarið opin í Rósenborg alla virka daga milli kl: 9:00 og 13:00. Á staðnum er bæði aðstaða til þess að lesa blöðin, fá sér kaffi og með því, spila pool, fara í borðtennis, spila eða fara í tölvurnar. Eins verða haldnar þar ýmsar gagnlegar kynningar.  Starfsfólk miðstöðvarinnar mun veita fjölbreytta og einstaklingsmiðaða aðstoð af ýmsum toga, t.d. að hjálpa fólki að sækja um niðurgreiðslu vegna námskeiða, sækja um skólavist, fá upplýsingar um réttindi sín, miðla sjálfboðaliðastarfi, gera áætlun í atvinnuleitinni, aðstoða við gerð ferilskráa, spjalla og fleira.  

Íslenskt samfélag gengur nú í gegnum erfiðan tíma og erum við Akureyringar þar ekki undanskildir, segir í fréttatilkynningu. Fjölmargir eru atvinnulausir eða í hlutastarfi, fólk úr öllum stéttum og atvinnugreinum er án vinnu. Það tekur á alla að missa vinnuna og erfitt er að reyna að finna aðra - sérstaklega í þessu árferði, þegar fá störf eru í boði. Flestum reynist, a.m.k. tímabundið, erfitt að halda í bjartsýnina og kraftinn. Þetta tímabil hins vegar mun líða hjá! Á meðan eigum við flest engra annarra kosta völ en að nýta tímann eins vel og mögulegt er og  vera til í slaginn þegar að kemur. Það er ótrúlega margt í boði á Akureyri fyrir einstaklinga sem eru án vinnu eða í hlutastarfi. Möguleikarnir eru alls staðar, það ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi  og hver veit nema að þessi tími muni leiða okkur á nýjar og spennandi slóðir. Í Möguleikamiðstöðinni starfa einstaklingar sem geta aðstoðað við að finna þá leið sem hentar hverjum og einum, til að nýta þennan tíma til fulls.  Þitt er valið, segir ennfremur í fréttatilkynningunni.

Nýjast